Vill skoða isavia í heild sinni

Þordís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála vill að fram fari skoðun á starfsemi Isavia sem legið hefur undir ámæli fyrir óheyrilega gjaldtöku fyrir bílastæði við Keflavíkurflugvöll, hvort heldur er fyrir almenning eða rútufyrirtæki.

Það var Þorsteinn Víglundsson, fyrrveranndi féelagsmálaráðherra sem spurði ráðherra út í málefni og stöðu ISAVIA og gjaldtöku þeirra í Keflavík í óundirbúnum fyrirspurnartíma í gærdag. Ráðherra benti á að hún hefði ekki einu sinni fulltrúa í stjórn ISAVIA og sagði: \"Mín persónulega skoðun varðandi ISAVIA er að það er auðvitað löngu kominn tími á að horfa á það allt saman.“