Vill skattafaslátt af útleigu íbúða

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar segir að mikilvægasta leiðin til lausnar á leigumarkaði sé að fjölga leiguíbúðum - og vill í þeim efnum bjóða fólki, sem getur leigt út herbergi eða íbúð, skattaafslátt.

Þetta kemur fram í aðsendri grein Árna Páls í Fréttablaðinu í gær, en þar segir hann húsnæðismál vera alvarlegasta úrlausnarefnið þessi misserin: \"Það er ekki nóg að byggja,\" skrifar Árni \"það verður að tryggja að íbúðirnar verði til útleigu til langframa.\"

Og hann kemur með tillögu: \"Ríkið getur líkt og sveitarfélög stuðlað að jákvæðum breytingum. Þess vegna leggjum við til skattaafslátt til einstaklinga vegna útleigu einnar íbúðar til að lágmarki 12 mánaða. Slík aðgerð gæti aukið framboð leiguhúsnæðis gríðarlega,\" skrifar Árni Páll og bendir á að um 4.000 íbúðir séu nú til leigu til ferðamanna í gegnum þar til gerðar vefsíður: \"Ef einungis hluti þeirra færi í langtímaleigu yrði stórum áfanga náð.\"

Og hann segir að aðrir sem ekki séu að leigja út í dag, gætu séð sér leik á borði, ef þessi lagabreyting yrði að  veruleika.