Vill sjá annað borgarsvæði á íslandi

Reinhard Reynisson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga vill að Íslendingar skoði af alvöru að byggja upp annað borgarsvæði að því er fram kemur á vef N4.

Hann nefnir Akureyri sérstaklega í þessu sambandi, sem styrki um leið nálæg svæði. Hann sér fyrir sér að íbúar Akureyrar verði 40 þúsund eftir um 30 ár.

Rætt verður við Reinhard Reynisson í þættinum „Landsbyggðir“ á N4 á fimmtudagskvöld klukkan 20:30