„Mikilvægast af öllu eru húsnæðismálin. Ég boða róttækar breytingar á húsnæðiskerfinu," sagði Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar í setningarræðu sinni á landsfundi Samfylkingarinnar sem hófst á Hótel Sögu í dag. Hann bætti við: "Við leggjum fyrir þennan fund heildstæðar úrbótatillögur. Ríkisstjórnin hefur ekkert gert í þessum málum. Dagur er byrjaður að auka framboð af leiguíbúðum í Reykjavík. En sú uppbygging mun taka mikinn tíma. Við getum ekki bara beðið. Ríkið verður að spila með," sagði síðar enn fremur: "Við þurfum hækkun húsaleigubóta. Við verðum að fjölga íbúðum til leigu og draga úr svimandi háu leiguverði. Þess vegna þurfa leigutekjur af einni íbúð að vera skattfrjálsar fyrir einstaklinga, en því aðeins að leiga sé ekki yfir meðalverði. Við þurfum að þróa kerfi viðbótarlána til að gera ungu fólki og tekjulágum fjölskyldum kleift að kaupa sína fyrstu íbúð. Samfylkingin ætlar að tryggja öllum húsnæði á sanngjörnum kjörum.“
Hann kom inn á kjaramálin: „Ríkisstjórnin hefur komið samskiptum við aðila vinnumarkaðarins í uppnám. Svar okkar verður að vera að leiða nýtt samtal við aðila vinnumarkaðarins. Norræna samfélagsmódelið hefur aftur og aftur sýnt að það getur betur glímt við bæði uppsveiflu og samdrátt en önnur kerfi. Til þessa að það virki þarf ábyrga hagstjórn, sem byggir á stöðugleika, góðum aðgangi að erlendum mörkuðum og samræmda launastefnu sem ýtir undir hagvöxt og fulla atvinnu og dregur úr launamun og tryggir að enginn verði skilinn eftir."