Leikarinn og leikstjórinn Bergur Þór Ingólfsson slær ekkert af í baráttu sinni gegn þöggun kyndferðisbrotamála og krefst þess nú, ásamt konu sinni, Evu Völu Guðjónsdóttur að lögreglan rannsaki bók úr fórum kynferðisglæpamannsins Roberts Downey sem virðist innihalda samsafn hugsanlegra fórnarlamba hans.
Í aðsendri grein þeirra í Fréttablaðinu í dag fjalla þau um snnunargagn G-06 í sakamáli 539/2007 sem sagt hafði verið týnt eða ónýtt, en er greinilega enn að finna í fórum yfirvalda, að því er segir í greininni. Og þau hjónin spyrja, ef þessi gögn sýna og sanna lista Roberts Downey yfir stúlkur undir lögaldri sem hann hafi ásælst, af hverju eru þau ekki rannsökuð í þaula; kynferðisbrotamál af þeim toga sem Robert Downey hafi verið dæmdur fyrir séu nú einu sinni ófyrnanleg.
Fraam kemur í grein Bergs og Evu að gögn Roberts, eða öllu heldur minnisbók hans um stúlkur á unglingsaldri, innihaldi lista yfir nöfn, símanúmer og netföng 335 kvenna, að því er virðist með aldri þeirra í lok hverrar línu.
Hjónin spyrja hvort andvaraleysi ríki innan lögreglunnar vegna þessa gagna - og hvort tortryggja beri lögregluna og dómsmálayfirvöld, dagsskipunin hafi ef til vill verið að tala niður baráttu brotaþola Roberts Downey \"sem sást skýrt þegar Páll Magnússon kallaði á dögunum fall ríkisstjórnarinnar \"garg út og atgang út af litlu\" um leið og hann krafði fólk um að vanda orð sín,\" eins og segir í grein Bergs og Evu í Fréttablaðinu í dag.