Vill pírata og eldri borgara í eina sæng

Arnar Jónsson, stórleikarinn góðkunni, segist styðja pírata sem stjórnmálasamtök. Hann vill að píratar og eldri borgarar bjóði fram saman.

Þetta kemur fram í viðtali Hringbrautar við Arnar. Hann stendur nú á tímamótum og er að loka hring eins og hann orðar það sjálfur. Hann segir pólitík einkenna flesta hluti og telur brýnt að aðhafast.

„Mitt starf hefur verið stöðugur slagur við pólitíkina, slagur við áherslur í uppeldis- og menntakerfinu. Nú lifum við svo efnislega tíma, svo mikla veraldarhyggju að materíalisminn er allt lifandi að drepa.“

Arnar krefst nýrrar stjórnarskrár en segir að vitaskuld muni valdaflokkarnir vegna eiginhagsmuna þvælast gegn því.

Lesa má allt viðtalið hér.