Vill opna fleiri fluggáttir til íslands

Ríkisstjórnin hefur að tillögu forsætisráðherra samþykkt að skipa starfshóp sem fær það hlutverk að kanna hvernig koma megi á reglulegu millilandaflugi um flugvellina á Akureyri og Egilsstöðum. Í tilkynningi frá stjórnvöldum segir að starfshópnum sé falið að greina kostnað og aðkomu einstakra stofnana og fyrirtækja að markaðssetningu flugvallanna. Starfshópurinn verði skipaður til þriggja mánaða og í lok starfstímans eigi hann að skila af sér aðgerða- og kostnaðaráætlun.

Í greinargerð með tillögunni segir að tæp milljón ferðamanna hafi komið til Íslands með flugi á síðasta ári og spár geri ráð fyrir mikilli fjölgun á næstu árum. Mikill meirihluti erlendra ferðamanna heimsæki einungis suðvesturhorn landsins og aðrir landshlutar njóti síður þeirrar miklu fjölgunar ferðamanna sem orðið hafi. Ríkisstjórnin vilji stuðla að aukinni dreifingu ferðamanna um landið, enda megi þannig dreifa því álagi á náttúruna sem fylgi auknum ferðamannastraumi. Þá skapist með aukinni dreifingu tækifæri fyrir fleiri landshluta til að byggja upp víðtækari þjónustu allt árið um kring og til að styrkja inniviði samfélagsins á viðkomandi landsvæði.