Vill nýsköpun fremur en stóriðju

Stjórnvöld ættu frekar að leita leiða til að halda í innlend nýsköpunarfyrirtæki heldur en að niðurgreiða starfsemi erlendrar stóriðju að mati Skúla Mogensens, forstjóra Wow.
 

Skúli var gestur í Morgunútvarpinu á Rás 2, svo sem fram kemur á vef RÚV í dag, en þar ræddi hann um umhverfisvernd. Skúli tók um helgina undir málflutning Bjarkar Guðmundsdóttur söngkonu og Andra Snæs Magnússonar rithöfundar. Þau héldu blaðamannafund í tengslum við Airwaves til að vekja athygli á umhverfisvernd og andmæla hugmyndum um sæstreng til Evrópu.

Skúli sagði í Morgunútvarpinu að hér væri ekki þörf á frekari virkjunum eða stóriðju. Það væri skiljanlegt að landsmenn hefðu fetað þessa leið fyrir um hálfri öld þegar auka átti fjölbreytni í íslensku atvinnulífi og skjóta fleiri stoðum undir það. Sú staða væri ekki lengur uppi: \"Auðvitað þarf kjark. Eins og ég segi hefur stóriðjuvæðingin verið ríkjandi á Íslandi, í 50 til 60 ár, og gríðarlegur þungi á bak við hana.“ Í þættinum líkti hann hugmyndum um raflínur yfir hálendið við umdeild áform í Bandaríkjunum um að leggja 3.500 kílómetra langa olíuleiðslu frá Kanada yfir Bandaríkin. Hvort tveggja olíuframleiðendur og repúblikanar hefðu barist mjög fyrir þeirri leiðslu en Barack Obama Bandaríkjaforseti staðist þann þrýsting.

Skúli sagði að Íslendingar byggju nú við fjölbreytt atvinnulíf, atvinnuleysi væri í lágmarki og ferðaþjónusta væri í miklum vexti. Því væri ástæða til að leita annarra leiða en að auka stóriðju: \"Mér þætti nær að ígrunda hvernig getum við haldið í mikið af þessum frábæru fyrirtækjum sem hafa verið jafnvel að flýja land, og af hverju eru þau að flýja land. Þá er ég að tala um innlend nýsköpunarfyrirtæki frekar heldur en að laða til okkar og niðurgreiða erlenda stóriðju,“ sagði Skúli í þætti Rásar 2 í morgun.