Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um könnun á viðhorfi almennings í Þýskalandi, Frakklandi, Bretlandi, Kanada og Bandaríkjunum til áframhaldandi hvalveiða Íslendinga.
Í þingsályktuninni er lagt til að Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra verði falið að láta kanna viðhorf almennings í ofangreindum löndum til áframhaldandi hvalveiða Íslands og hvaða áhrif þær geti mögulega haft á:
a. sölu á íslenskum vörum á mörkuðum í þessum löndum,
b. ferðamenn sem koma til Íslands eða hafa hug á því,
c. vörumerkið Ísland.
Í þingsályktunartillögunni segir meðal annars: „Stjórnvöldum ber skylda til að safna greinargóðum upplýsingum um áhrif ákvarðana sinna á mikilvægustu viðskiptamörkuðum okkar. Ákvörðun um áframhaldandi hvalveiðar er veigamikil og sterkar vísbendingar eru uppi um að stærstu útflutningsgreinum Íslands stafi ógn af þeirri ákvörðun. Því er nauðsynlegt að kanna áhrif áframhaldandi hvalveiða á ímynd landsins og vörumerkið Ísland áður en ný veiðileyfi verða gefin út.“
Þorgerður Katrín er aðalflutningsmaður tillögunnar og meðflutningsmenn eru Hanna Katrín Friðriksson, Jón Steindór Valdimarsson, Þorsteinn Víglundsson, Helga Vala Helgadóttir, Logi Einarsson, Halldóra Mogensen og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.