Vill láta aðla andstöðuþingmenn vg

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, vill að forseti Íslands sæmi þá þingmenn VG sem sögðu nei við Icesave riddarakrossi.

Þetta kemur fram í færslu sem þingmaðurinn birtir í kvöld á eigin fésbók.

„Nú rennur upp sá tími er forseti Íslands veitir verðugum riddarakross Íslensku fálkaorðunnar. Ég tel að á þessum tímamótum eigi Ögmundur Jónasson, Ásmundur Einar Daðason, Lilja Mósesdóttir og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir skilið að vera sæmd fálkaorðunni vegna framgöngu þeirra í Icesave málinu á sínum tíma,“ skrifar Jón.

Hann heldur áfram: „Ef þessir þingmenn hefðu ekki gengið til liðs við sjálfstæðis- og framsóknarmenn í andstöðu við Svavars samninginn á sínum tíma er líklegt að hann hefði verið samþykktur í þinginu og undirritaður á Bessastöðum áður en öflug samfélagsöfl náðu vopnum sínum.“

Ef fyrrum ríkisstjórn hefði ekki klofnað í málinu væri minna fé en ella til að gera vel við öryrkja og eldri borgara að mati þingmannsins.

„Samkvæmt áætlun þáverandi fjármálaráðherra Steingríms J. Sigfússonar sætum við þá uppi með það að þurfa að greiða tæpa 40 milljarða á næsta ári, 60-70 milljarða næstu 6 árin þar á eftir og að lokum tæpa 30 milljarða. Setjum það í samhengi við tækifæri okkar til að gera betur í stuðningi okkar við t.d. eldri borgara, öryrkja og uppbyggingu í heilbrigðiskerfinu. Við eigum þessu fóki mikið að þakka,“ skrifar Jón Gunnarsson.