Unglingurinn Jón Bjarni, sem hefur skapað sér nafn sem rödd unga fólksins á samfélagsmiðlinum Twitter kvartaði nýverið yfir því að menntskælingar sem eru teknir við að neyta áfengis á skólaböllum séu einfaldlega reknir.
Eins og vitað er er bannað að neyta áfengis og vímuefna á viðburðum menntaskólana, en þekkt er að nemendur hópist saman fyrir böll og fái sér í tána.
Kallar hann eftir einhverjum lögum sem koma í veg fyrir að nemandi sé rekinn fyrir áfengisneyslu svo lengi sem það gerist ekki innan skólabyggingarinnar.
Hér fyrir neðan má sjá Twitter færsluna í heild.
Take: það þurfa að vera lög sem koma í veg fyrir það að nemendur framhaldsskóla séu reknir úr námi fyrir að neita áfengis líka á viðburðum nemendafélaga svo lengi sem það er ekki inn í skólabyggingu þá ætti það að slidea. Kannski svona 2 strikes and your out. Ekki 1 sopi = rekinn
— Jón Bjarni (@jonbjarni14) March 18, 2022
Hvað finnst ykkur kæru lesendur?