Bjarni Benediktson fjármálaráðherra metur það svo að bætta stöðu ríkissjóðs megi nota á næstunni til að lækka skatta og draga úr tollum á nauðsynjavörum, en komið hefur fram að losun hafta mun stóbæta skuldastöðu ríkissjóðs.
Bjarni hefur áréttað margsinnis að allar tekjur ríkissjóðs af haftalosuninni eigi afdráttarlaust að nota til skuldalækkunar ríkisins, en það muni jafnframt bæta lánshæfismat ríkissjóðs og auka möguleika þess á uppbyggingu í samfélaginu til langframa; fleiri krónur fari til verka, færri í vexti.
"Bætt staða ríkissjóðs mun skapa svigrúm fyrir áframhaldandi skattalækkanir en þær þarf að tímasetja mjög vel," segir Bjarni við Morgunblaðið í dag og nefnir þar lækkun tryggingargjalds, lægri álögur á einstaklinga og afnám tolla, en hann hefur áður sagst. vilja nema burt tolla af fötum og skóm, svo dæmi sé tekið - og má túlka orð hans svo í dag að um frekari tollalækkanir verði að ræða.