Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist vilja lækka eignaverð Íbúðalánasjóðs verulega og liðka þannig fyrir fasteignakaupum. Hann segir greiðslumatið fyrir lántakendur alltof strangt en fjölmiðlar sögðu frá því á dögunum að Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður, hefði varla komist í gegnum matið þótt nánast skuldlaust væri.
Guðlaugur Þór var gestur þáttarins Afsals sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld. Aðspurður um lækkun vaxta á húsnæðislánum, sagði Guðlaugur Þór stöðugleika vera lykilatriði og benti sérstaklega á að mikilvægt væri fyrir Ísland að fara að komast í norræna módelið sem fyrst.
Í þætti kvöldsins var einnig rætt við Ólaf Hauk Ólafsson, forstöðumann eignatjóna hjá Tryggingamiðstöðinni og hann spurður um hver algengustu tjón fasteignaeigenda eru, en þar komu fram athyglisverðar upplýsingar, svo sem þær að vatns-, fok- og brunatjón væri algengusti skaðvaldurinn þegar kæmi að eignum fólks.
Umsjónarmaður þáttarins er Rakel Sveinsdóttir.
Afsal er á dagskrá klukkan 21.00 og í endursýningu klukkan 23.00 á fimmtidagskvöldum en sjáanlegur í heild sinni eða klippum á hringbraut.is.