Vill kynjabókhald hjá fjölmiðlum

Velferðarráðherra leggur til að fjölmiðlar birti reglulega tölur um fjölda og kynjaskiptingu viðmælenda. Fjölmiðlar endurspegli ekki samfélagið og ærin verkefni séu framundan í jafnréttsbaráttunni.
 

Jafnréttisþing stendur nú yfir á Hótel Nordica, undir yfirskriftinni Kynlegar myndir, jafnrétti á opinberum vettvangi. Á þinginu er fjallað um skýrslu félagsmálaráðherra um þróun og stöðu jafnréttismála 2013-2015. Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra segir í samtali við fréttavef RÚV í dag að ærin verkefni framundan í jafnréttisbaráttunni: \"Já svo sannarlega og það er það sem við erum að sjá núna. Hér erum við að fjalla um hvernig jafnréttismálin birtast okkur á opinberum vettvangi, hvernig þau birtast í fjölmiðlunum og niðurstöður þeirrar rannsóknar sem við erum með í höndunum segja okkur einfaldlega að fjölmiðlar eru ekki að endurspegla fjölbreytileikann í samfélaginu, þeir eru ekki að endurspegla stöðu kvenna í samfélaginu, stöðu kvenna í stjórnmálunum, stöðu kvenna í atvinnulífinu eða hátt menntunarstig kvenna,“ segir Eygló við vefinn. 

Hún segir þar jafnframt að á þinginu verði rætt hvað sé til ráða. Það sé sláandi að sjá að rannsókn frá árinu 2001 sýni mjög svipaðan fjölda kvenviðmælenda og rannsókn sem gerð var á þessu ári. Hún segir að jafnréttisþing þurfi að ræða hvort ástæða sé til að reglur verði settar um fjölda viðmælenda eða hvort fjölmiðlar birti einfaldlega sjálfir vikulega lista yfir fjölda viðmælenda frétta- og þáttagerðarmanna: \"En ég held að það geti verið stórt skref fram á við og það er kannski mín áskorun til fjölmiðla að bara einfaldlega birta tölurnar, hvort sem við erum að tala um vikulega eða mánaðarlega og sýna hver hlutföllin eru.“ 

Rétt er að benda á í þessu sambandi að Hringbraut birtir mánaðarlega upplýsingar um fjölda viðmælenda sinna og hvernig skiptingin er þar á milli kynja, en hún hefur jafnan verið jöfn.