Fasteignasalan Garðatorg hefur sent frá sér formlega fyrirspurn um kaup á öllum íbúðum í eigu Fasteigna Ísafjarðarbæjar. Bæjarráð hefur ekki tekið afstöðu til málsins, en Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar mun fara betur yfir málið áður en ákvörðun verður tekin.
Þetta kemur fram á vefsíðu Bæjarins besta á Ísafirði.
Fram kemur að áhugasamur kaupandi hafi leitað til fasteignasölunnar og óskað eftir að kaupa allar íbúðirnar. Kaupandinn hafi í huga óbreytt rekstrarform og að útleiga á íbúðum verði áfram í sömu mynd og áður. Íbúðirnar sem um ræðir eru yfir 100 talsins, staðsettar á Ísafirði, Suðureyri, Þingeyri og Flateyri.