Róbert Wessman, forstjóri lyfjafyrirtækisins Alvogen og fyrrverandi forstjóri Actavis, hefur lýst yfir áhuga sínum á að kaupa verksmiðju Actavis í Hafnarfirði, en þar missa 300 manns vinnu sína á næstu misserum vegna flutnings verksmiðjunnar til útlanda.
Róbert staðfestir við Fréttablaðið í dag að tilboð í verksmiðjuna og sölustarfsemi Actavis hér á landi hafi verið lagt fram: \"Við höfum lýst yfir áhuga á því að kaupa verksmiðjuna í Hafnarfirði en því miður hafa ekki náðst samningar. Það eru auðvitað dapurleg tíðindi ef þessi starfsemi leggst af en við teljum að hægt sé að finna rekstrargrundvöll fyrir verksmiðjuna hér á landi. Við höfum enn þá áhuga á að skoða kaup á þessari starfsemi en nauðsynlegt er að einhver framleiðsla fylgi með í þeim kaupum. Við höfðum hugsað okkur að íslenski markaðurinn fylgdi með.“
Róbert varð forstjóri Actavis á árinu 1999 þá aðeins 29 ára gamall en lét af störfum árið 2008 og hefur síðan leitt alþjóðlega uppbyggingu Alvogen sem hefur byggt upp starfsemi sína hér á landi. Róbert segist vilja gera allt sem hægt sé til að tryggja áframhaldandi rekstur verkmiðju Actavis: \"Við teljum að verksmiðjan geti áfram verið samkeppnishæf og viljum nýta þá miklu þekkingu og reynslu sem hefur skapast innan fyrirtækisins.“
Ásdís Ýr Pétursdóttir, sviðsstjóri samskiptasviðs Actavis, segir það stefnu fyrirtækisins að tjá sig ekki um sögusagnir.