Vill kaupa 10% í bankanum

Stjórn Landsbankans hyggst leggja til við aðalfund bankans þann 18. mars að henni sé veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af hlutabréfum bankans. Í kjölfarið verður tekið til skoðunar að minnka hlutafé bankans, að sögn Steinþórs Pálsson bankastjóra. Tilkynninguna má lesa sem svar bankans við vilja fjármálaráðherra á dögunum, en þar sagðist Bjarni Benediktsson vilja breyta eignarhaldi Landsbankans sem verið hefur að meginhluta í eigu ríkisins frá hruni; selja beri vænan hlut ríkisins í honum, en hver nýr hluthafi mætti þó ekki eiga nema 10 til 20 prósent í bankanum. Ráðherra hefur sagt í þessu sambandi að ríkið eigi að halda eftir 40 prósenta hlut í Landsbankanum. 


Landsbankinn hagnaðist vel á síðasta ári, eða sem nemur 29,7 milljörðum króna sem er annað árið í röð sem afkoma hans er jákvæð um liðlega 30 milljarða króna.