Vill kanna hvað fylgir fjárstuðningi

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri vill að mannréttindanefnd Reykjavíkurborgar skoði það sérstaklega hvort einhverjar áherslur eða kvaðir fylgi fjárstuðningi stjórnvalda í Sádi-Arabíu við byggingu mosku í Sogamýri í Reykjavík. Nýr sendiherra Sáda á Íslandi tilkynnti forseta Íslands í vikunni að stjórnvöld í heimalandi hans vildu styðja smíði moskunnar umtalsvert, eða sem næmi vel á annað hundrað milljónum króna. Sjálfur hefði sendiherrann skoðað lóðina undir moskuna og litist vel á. Dagur B. Eggertsson gerir athugasemdir við þessa fyrirætlan; taka þurfi af allan vafa um að þessari peningagjöf fylgi ekki kvaðir um að lýðfrjálst land víki undan gildum sínum í mannréttindum.