Vill kanna hug fólks til borgríkis

Hilmar Sigurðsson sem á sæti í stjórnkerfis- og lýðræðisráði Reykjavíkur fyrir Samfylkinguna lagði í dag fram tillögu þess efnis að hugur borgarbúa til stofnunar sjálfstæðs borgríkis verði kannaður.


Tillagan er sett fram í ljósi framkomins frumvarps til laga á Alþingi um skipulags- og mannvirkjamál á Reykjavíkurflugvelli, en þar er gert ráð fyrir að vald borgarinnar yfir skipulagi flugvallarins verði fært frá borg til ríkis.


Í greinargerð með tillögu Hilmars í dag segir eftirfarandi: "Samkvæmt fyrirliggjandi frumvarpi til Alþingis er ljóst að vegið er þar gróflega að skipulagsvaldi Reykjavíkurborgar og að flutningsmenn tillögunnar ganga gegn viðteknum hugmyndum um forræði sveitarfélaga á eigin skipulagsmálum. Atkvæði hvers borgarbúa er þegar um þriðjungi minna virði en íbúa utan höfuðborgarsvæðisins og ljóst er að í krafti þess er verið að leggja til að þröngva í gegn breytingu sem ekki fengist samþykkt ef atkvæði á Íslandi væru jöfn, óháð búsetu. Það eru eðlileg og sjálfsögð mannréttindi að hvert atkvæði á Íslandi sé jafnt og að hver og ein manneskja á kosningaldri hafi jafnt atkvæði. 


Í ljósi framkomins lagafrumvarps á Alþingi er rétt að kanna hug borgarbúa til að stofna sjálfstætt borgríki og segja sig úr lögum við ríkið Ísland. Reykjavík hefur alla burði til að standa sig vel sem sjálfstætt borgríki og til staðar eru nær allir innviðir til að slík breyting gæti gengið hratt og örugglega fyrir sig."