Elsa Lára Arnardóttir, þingmaður Framsóknarflokks, sagði í Þjóðbraut í morgun að hún vildi hitta Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokks, og segja honum á þá leið hvaða skoðun hún hefur á framtíð hans í forystu Framsóknarflokksins.
Elsa Lára sagðist ekki telja við hæfi að hún talaði fyrst um þetta í fjölmiðlum.
Hún er þriðji þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi. Fyrir ofan hana eru Gunnar Bragi Sveinsson og Ásmundur Einar Daðason. Elsa Lára segist vilja halda þingmennsku áfram og undirbýr slag við þá Gunnar Braga og Ásmund Einar í von um að ná að halda sæti á Alþingi.