Vill heildstæðara mat á áhrifum hvalveiða

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra vill að heildstæðara mat verði gert á áhrifum hvalveiða við Ísland. Þetta var meðal þess sem kom fram í svari hennar við fyrirspurn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar, um hvalveiðar í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. RÚV.is greinir frá.

„Ég tel mikilvægt að það fari fram heildstætt mat á sjálfbærni hvalveiða,“ sagði Katrín en bætti við að hún gæti ekki svarað því hvort hvalveiðar væru sjálfbærar, enda væri hún ekki sérfræðingur.

Þorgerður Katrín spurði Katrínu m.a. að því hvort hún hygðist leita eftir því við Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að hann dragi til baka ákvörðun sína um leyfisveitingu á veiðum á langreyði og hrefnu til næstu fimm ára.

„Ég ber virðingu fyrir því að ráðherra byggi ákvörðun sína út frá bestu gögnum sem við eigum,“ sagði Katrín og vísaði til skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, þar sem  er fullyrt að hvalveiðar séu ekki skaðlegar enda hafi stofn langreyða stækkað.

Katrín telur mat Hagfræðistofnunar hins vegar ekki vera fullnægjandi. „Ég tel ekki að hið raunverulega mat hafi farið fram á samfélagslegum áhrifum af hvalveiðum.“