Í viðtali við RÚV segir oddviti Samfylkingarinnar Logi Einarsson að flokkur hans muni ekki setja það sem skilyrði í viðræðum við VG eða aðra stjórnarandstöðuflokka að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandi.
Logi segir að flokkur sinn megi ekki dæma sig til áhrifaleysis. Logi segir það algjörlega klárt mál að ef Samfylkingin ætlar sér að vera áhrifavaldur í íslenskum stjórnmálum á næstu árum þá þarf Samfylkingin að vera skynsöm og raunsæ og mun því Samfylkingin nálgast Evrópumálin út frá því.