Peter Kofod, þingmaður Danska þjóðarflokksins á Evrópuþinginu, vill gjörbylta formi atkvæðagreiðslna á þinginu. Hann krefst aukins gagnsæis og vill að kjósendur geti fylgst betur með því sem þingmennirnir gera. Hann segir slæmt að kjósendur geti ekki kíkit yfir axlir þingmanna og vitað hvað þeir kjósa. Þessi orð lét hann falla í kjölfar atkvæðagreiðslu þingsins í síðustu viku um nýjan formann framkvæmdastjórnarinnar en þá var hin þýska Ursula von der Leyen kjörin í embættið í leynilegri atkvæðagreiðslu.
Kofod segir að Danir búi við stolta hefð um að hægt sé að sjá hvað þingmenn kjósa hverju sinni, það sé heilbrigt að kjósendur geti fylgst með störfum þingmanna. Þetta gagnsæi sé ekki við lýði á Evrópuþinginu og það sé ólýðræðislegt og ósæmandi.
Það er grein 124 í þingsköpum Evrópuþingsins sem kveður á um að atkvæðagreiðslur um formann framkvæmdastjórnarinnar skuli vera leynilegar. Ástæðan er að gera þingmönnum kleift að greiða atkvæði gegn frambjóðendum sem pólitískir hópar þeirra styðja opinberlega. Þingmennirnir geta þá einnig greitt öðrum frambjóðendum atkvæði sitt.
Kofod segir að þessi rök haldi ekki. Það séu veikburða stjórnmálamenn sem ekki geti staðið við skoðanir sínar og ef svo er komið eigi fólk að íhuga hvort það eigi eitthvað erindi í stjórnmál.