Vill formannskjör á flokksþingi

 Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknarflokks, sagði í Þjóðbraut í kvöld að hann vilji að á flokksþingi Framsóknarflokks, verði kosið um formann sem og varaformann og ritara.

„Það má kalla þetta krísu,“ sagði Willum Þór þegar hann talaði um ástandið innan Framsóknarflokksins.

Sveinbjörn Eyjólfsson hefur sagst ætla í formannskjör. Willum Þór segir það gott hjá Sveinbirni sem þar með hefur tryggt að kosið verði á flokksþinginu.

Willum Þór sagði að um næstu helgi velji sunnlenskir framsóknarmenn sinn framboðslista. Willum Þór sagðist vænta þess að Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, fái góða kosningu í fyrsta sæti listans.