Vilhjálmur Bjarnason, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna hvetur alla til að fjölmenna í Hæstarétt í dag klukkan 09:00, því þá mun Hæstiréttur taka fyrir mál samtakanna um ólögmæti verðtryggingarinnar.
Vilhjálmur var gestur þáttarins Afsals sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld. Hann segir ríkisstjórnina engan veginn hafa staðið sig í þeim loforðum sem gefin voru fyrir síðustu kosningar.
Þótt samtökin hafi oft verið kölluð til fyrir þingnefndir, hafa hvorki Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, svarað þeim fundarbeiðnum sem samtökin hafa óskað eftir, til að ræða verðtrygginguna og afnám hennar eða áhrif dómsins, verði þau dæmd ólögleg.
Vilhjálmur segir peningaöflin í landinu viðhalda því kerfi sem við búum við. Almenningur sé ekki hinn ráðandi aðili í þessu. Þannig sé verðtryggingin hagstæð fyrir fjármagnseigendur og pólitíkin viðhaldi verðtryggingunni einnig með aðgerðarleysi sínu: \"Fólk er að flýja fortíðina,” segir Vilhjálmur einnig um þá búferlaflutninga sem enn eigi sér stað, svona löngu eftir hrun. Almennt vilji fólk ekki bjóða börnunum sínum upp á að búa við þau kjör sem hér eru í boði. Þessu þurfi að breyta.
Afsal er í endursýningu á mánudagskvöld.