Vill fara skosku leiðina – „ég hef mikl­ar áhyggj­ur af þessum óveðursskýjum“

Fundur um­hverf­is- og sam­göngu­nefnd­ar Alþingis hófst klukkan 8:30 í morgun. Fundurinn fer fram að beiðni Vilhjálms Árnasonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins og eins nefndarmanna, en hann hefur þungar áhyggjur af stöðu innanlandsflugs hér á landi.

Á fund­in­um eru full­trú­ar frá Erni og Flug­fé­lagi Íslands ásamt fulltrúum Isa­via. Óskaði Vilhjálmur eftir fundinum í kjölfar þess að flugrekstraraðilar hafa dregið saman seglin í áætlunarflugi innanlands og lýst yfir erfiðleikum í rekstri.

„Ég hef mikl­ar áhyggj­ur af þess­um óveðurs­skýj­um sem eru að hrann­ast yfir inn­an­lands­flugið, bæði hvað það er mik­il fækk­un á farþegum og yf­ir­lýs­ing­um rekstr­araðila um rekstr­ar­vanda hjá þeim. Þeir hafa verið að grípa til þess ráðs að fækka ferðunum, draga úr tíðni ferða til nokk­urra áfangastaða,” seg­ir Vil­hjálm­ur í samtali við Mbl.is.

Hann segir brýnt að ný samgönguáætlun til næstu fimm ára komi til framkvæmda sem fyrst, þar sem helst muni um hina svokölluðu skosku leið í innanlandsflugi. „Þetta er akkúrat á sama tíma og við erum búin að gefa út nýja sam­göngu­áætlun þar sem við telj­um mjög mik­il­vægt fyr­ir byggðir lands­ins að efla inn­an­lands­flugið.”

Í skosku leiðinni felst að ríkið niðurgreiði flugfargjöld íbúa á landsbyggðinni. Í samgönguáætlun er lagt til að skoða kosti þessarar leiðar.

Vilhjálmur segir að á fundinum von­ist hann til þess að fá betri yf­ir­sýn yfir stöðu mála og hvað þurfi að gerast til þess að erfið staða innanlandsflugs geti snú­ist við.