"Það eru verkföll og kjaradeilur, sem ekki virðast ætla að leysast á næstunni og einu hugmyndirnar sem hugsanlega miða í samkomulagsátt eru tillögur um að hækka laun forseta Íslands og Seðlabankastjóra;" sagði Karl Ágúst Úlfsson í inngangi þáttar síns, Helgarinnar á Hringbraut í gærkvöld.
Og hélt áfram eins og honum einum er lagið: "Menn virðast telja vonlaust að ná því markmiði að lægstu laun hækki upp í 300.000 á mánuði og til að einfalda málin þykir mönnum mun raunhæfara að hækka laun Ólafs Ragnars og Más Guðmundssonar um 300.000. Allt annað myndi ógna stöðugleika, segir Már sjálfur. Verum með fæturna á jörðinni."
Leikarinn góðkunni sagði ennfremur: "Annars benti Vigdís Hauksdóttir á að yfirstandandi og yfirvofandi verkföll launafólks á Íslandi séu enn eitt dæmið um einelti þjóðarinnar á ríkisstjórninni. Vigdís segir að það sé ‘‘þegjandi samkomulag’’ um að ekki sé farið í verkföll á meðan vinstri stjórnir sitji við völd. Maður veltir því fyrir sér hvort Framsóknarflokkurinn geti ekki komist að einhverju ‘‘þegjandi samkomulagi’’ við Vigdísi."
Karl Ágúst fer alltaf víða í þessum inngangsorðum sínum: "Og stjórnarandstaðan hefur eytt tugum klukkutíma í umræður um fundarstjórn forseta Alþingis. Hversu slæm er þessi fundarstjórn forseta fyrst það þarf að ræða hana dögum saman? Og er þá ekki ástæða til að stofna sérstaka deild innan þingsins til að ræða fundarstjórn forseta, svo hægt sé að halda áfram að vinna? Eða - í ljósi þess að þingið er langt á eftir áætlun í öllu sem það þarf að gera: Er ekki tími til kominn að færa þingmenn úr biðflokki í nýtingarflokk?"
Þetta líka: "Og í þessari viku héldu áfram réttarhöld í Kaupþingsmálunum. Og enn og aftur kom það í ljós að allir sem ákærðir eru vegna hruns íslenska bankakerfisins eru blásaklausir af öllu sem borið er uppá þá. Það er sem sagt að koma á daginn að embætti sérstaks saksóknara virðist hafa verið stofnað eingöngu til að klekkja á og níðast á blásaklausu fólki sem hafði ekki unnið sér neitt til saka annað en að vera á sæmilegum launum. Er þetta ekki dæmigert fyrir öfundina í íslensku samfélagi?"
Og svona endaði leikarinn inngang sinn að þessu sinni: "Og prestar þjóðkirkjunnar þurfa ekki að gifta samkynja pör ef samviska þeirra býður þeim annað. Þetta á þó aðeins við um presta með hreina samvisku. Þeir prestar sem hafa eitthvað misjafnt á samviskunni þurfa að sækja um undanþágu frá samviskureglunni og samviskulausir prestar geta fengið úthlutað nýrri samvisku frá biskupsstofu, sem reyndar vill ekki tjá sig um málið. Og þýðendum Evrópusambandsins hefur loksins tekist að þýða bréf Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra, sem hann afhenti fyrir fáeinum vikum og talið var að snerist um hugsanlega aðildarumsókn Íslands að bandalaginu, en reyndist vera uppskrift að djöflatertu, gæðavottuð af Sigmundi Davíð. Og Akureyringum er stórlega misboðið vegna gífurlegra gleðiláta sem brutust út hjá starfsfólki Fiskistofu yfir því að þurfa ekki að flytja norður. ‘‘Hvað er eiginlega að Akureyri?’’ spyr fólk fyrir norðan. ‘‘Það er ekki eins og við séum að tala um Vestmannaeyjar.’’ Og framlag Íslands til Feneyjatvíæringsins hefur vakið hörð viðbrögð þar ytra. Mótmælendur segja íslenska menningu og list vera á lágu plani, ekki túskildings virði og eiga heima úti í hafsauga. Íslensk stjörnvöld þakka mótmælendum þennan stuðning, taka heilshugar undir sjónarmið þeirra og segjast einmitt alltaf hafa haldið þessu fram."
Hægt er að nálgast þætti Karls Ágústs undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is og einnig klippur úr nýjasta þættinum á forsíðu vefjarins.