Þetta var haft eftir Gunnarr Bragi Sveinssyni utanríkisráðherra í Morgunútgáfunni á á RÚV á níunda tímanum í morgun, en ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í gær að setja á fót ráðherranefnd til að fjalla um málefni flóttamanna og móta stefnu um fjölda þeirra á næstu misserum. Gunnar Bragi segir mjög gott að Íslendingar fari í gegnum þessa umræðu og skýri og skerpi á stefnu sinni, Íslendingar geti ekki verið stikkfrí. Hann vísaði til þess hvernig almenningur hefði látið til sín taka í umræðunni um flóttamenn að undanförnu og sagði gott að fara inn í þessa vinnu með stuðningi almennings.
Sjálfur vill hann ekki nefna tölu: \"Ég hef ekki viljað taka þátt í því, ég ætla að leyfa mér að nefna það uppboð eða pissukeppni, að nefna tölur varðandi flóttamenn. Mér finnst það í rauninni fáránleg umræða að vera að nefna, fimm hundruð, þúsund, 1.500 eða hvað sem það er. Það sem við þurfum að gera er að setjast niður og átta okkur á því hvað við getum gert og til hvers við treystum okkur,“ sagði Gunnar Bragi á RÚV í morgun.
Hann segir að í framhaldi af starfi vinnuhópsins verði tekin ákvörðun um hvort og þá hversu mikið verði bætt við þá 50 kvótaflóttamenn sem stjórnvöld höfðu áður ákveðið að taka við: \"Ég held að við getum eitthvað bætt við hjá okkur en ég treysti mér ekki til og vill ekki fara að nefna einhverjar tölur í einhvers konar samkeppni. Mér finnst það í rauninni bara alveg galið.“