Vill ekki verða forsætisráðherra

Birgitta Jónsdóttir, þingflokksfomaður Pírata og kapteinn þeirra um árabil segir að sér hugnist ekki að verða forsætisráðherra í næstu ríkisstjórn landsmanna; hún sé einfaldlega ekki nógu mikill verkstjóri til að taka það starf að sér.

Þetta kom fram í einkar pesónulegu samtali hennar við Sigmund Erni í Mannamálum í gærkvöld, en þáttinn er hægt að nálgast á hringbraut.is í heild sinni eða að hluta.

Píratar hafa sem kunnugt er farið með himinskautum í hverri skoðanakönnunni af annarri og um misseris skeið mælst með yfir 30% fylgi á meðan aðrir hefðbundnari stjórnmálaflokkar hafa átt í mesta basli við að höfða til kjósenda. Ef fram fer sem horfir er þess að vænta að Píratar leiði næstu ríkisstjórn, en konan sem þar hefur lengst af staðið í brúnni aftekur í þætti kvöldsins að hún muni leiða hana.

Birgitta fór yfir sögu sína í þættinum, en þar skiptast sannarlega á skin og skúrir; hún átti erfiða æsku og fór oft og tíðum á milli heimila, lenti upp á kant við skólakerfið, glímdi við einelti og andlegt mótlæti, en stærstu áföllin riðu hins vegar yfir þegar hún var um og upp úr tvítugt; fyrst gekk kletturinn í lífi hennar og fósturfaðir, Jón Ólafsson í Sogið og tók þannig líf sitt - og nokkrum árum seinna lét eiginmaður Birgittu, Charles Egill Hirt sig hverfa á Snæfellsnesi og var gerð að honum mesta leit sem gerð hefur verið að týndum manni á Íslandi. Birgitta orðaði það svo að hún væri komin með svarta beltið í sorginni.

Þá lýsti Birgitta samskiptum sínum og móður sinnar, Bergþóru Árnadóttur sem lést langt fyrir aldur fram, en það var ekki endilega auðvelt að búa með henni á meðan hún stundaði tónlistina af mestu kappi.

\"Það kom mér satt best að segja á óvart hvað Birgitta var persónuleg og opinská í þessu samtali okkar,\" segir þáttastjórnandinn Sigmundur Ernir og bætir við: \"Ég held að viðtalið skýri að hluta af hverju Píratar hafa svona mikið fylgi. Hér kom manneskja til dyranna eins og hún er klædd og hefur ekkert að fela þótt margt í sögunni sé á svig við venjubundna lífsgöngu.\"

Mannamál er sem fyrr segir hægt að skoða inn á hringbraut.is.