Forystumenn Blaðamannafélags Íslands undrast stórum þá ákvörðun lögreglustjórans í Vestmannaeyjum að engar upplýsingar skuli berast um kynferðisbrotamál úr Eyjum á meðan á Þjóðhátíð stendur.
Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri byggir þessa ákvörðun sína á þeirri sannfæringu að brotaþolum líði illa yfir fréttaflutningi um mál sín og hún vilji bera hag þeirra fyrir brjósti, en hún þekki mjög vel til málaflokksins sem lögmaður kvenna sem orðið hafa fyrir kynferðisofbeldi; öll umfjöllun sé þungbær fyrir þær. Hún hefur sent bréf til allra viðbragðsaðila þessa efnis þar sem hún brýnir fyrir þeim að upplýsa ekki fjölmiðla um hugsanleg kynferðisbrot á meðan á hátíðinni stendur. Ekki er vitað hvernig þessir aðilar munu bregðast við bréfi Páleyjar, en þar er meðal annars um að ræða gæslumenn á svæðinu, starfsmenn neyðarmóttöku, heilbrigðisstarfsmenn og sjúkraflutningamenn. Þá er og óvíst hvort lögreglustjóri hafi umboð til að skipa þessum aðilum fyrir verkum með þessum hætti
Talskona Stígamóta hefur harmað þessa ákvörðun og segir lögreglustjórann á algerum villigötum eins og fram kemur í frétt hér á hringbraut.is. Óli Kristján Ármannsson varaformaður Blaðamannafélags Íslands tekur undir það í Fréttablaðinu í dag og segir þetta vera furðulega afstöðu: \"Þögn og þöggun um samfélagsmein kann ekki góðri lukku að stýra,\" segir hann
\"Fjölmiðlar hafa mikilvægu hlutverki að gegna í almennri þjóðfélagsumræðu og við að þoka hlutunum til betri vegar,\" segir Óli Kristján og metur það svo að afstaða sem þessi lýsi algeru skilningsleysi á því hlutverki.