Starfshópur á vegum forsætisráðuneytisins sem kannað hefur möguleika á beinu millilandaflugi frá Akureyri og Egilsstöðum telur að ríkið geti haft umtalsverður tekjur þessari samgöngubót, eða sem nemur 1,3 milljarði á ári.
Matthías Imsland aðstoðarmaður félagsmálaráðherra hefur leitt hópinn fyrir forsætisráðuneytið en hann hefur meðal annars skoðað hvaða þýðingu það hafi að fella niður opinber gjöld á þau flugfélög sem hæfu millilandaflug á þessa staði og aðstoða þau á annan hátt við markaðssetningu svæðanna, en í báðum tilvikum greiða þau leið fyrir ferðamenn inn á miklar náttúruparadísir um norðan- og austanvert landið.
Með því að gera ráð fyrir fjórum lendingum í viku, tveimur á Akureyri og tveimur á Egilsstöðum með rúmlega eitthundrað erlenda ferðamenn í hverri ferð gæti tekjuaukning hins opinbera orðið tæplega 1,3 milljarðar króna og þá er ónefndur ávinningur ferðaþjónustunnar á nærsvæðunum sem er metinn á 3,6 milljarða króna á ári.
Matthías segir í samtali við Fréttablaðið í dag að mikilvægt sé að nýta þá innviði sem eru til staðar um norðaustanvert landið, en þeir séu að mörgu leyti vannýttir nú um stundir, en þess utan sé mikilvægt að dreifa ferðamönnum betur yfir landið en nú er gert.