Vill efla forkaupsrétt sveitarfélaga

Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra telur ótækt að fiskveiðikvóti í núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi hafi litla sem enga byggðafestu og boðar fyrir vikið breytingar í þá veru að efla til muna forkaupsrétt sveitarfélaga að heimakvóta.


Umræða um byggðafestu fiskveiðikvótans hefur komist í hámæli eftir að Vestmannaeyjabær tapaði máli sínu á hendur Síldarvinnslunni í Neskaupstað sem keypti nýverið kvóta Bergs-Hugins í Eyjum, en bærinn vildi láta reyna á forkaupsrétt sinn í því máli. Niðurstaðan þýðir að 5200 þorskígildistonn eru farin með haus og hala úr bænum - og munar um minna fyrir rösklega fjögur þúsund manna samfélag.


Sjávarútvegsráðherra kveðst vilja bregðast við þessari glufu í kerfinu og efla forkaupsrétt sveitarfélaga til muna svo stoðunum verði ekki auðveldlega kippt undan atvinnulífi sjávarbyggða hringinn í kringum landið. Í því efni hefur verið bent á að útgerð og fiskvinnsla er að meginhluta rekin úti á landi en hátt í 90% af aflaheimildum landsmanna er að finna utan Reykjavíkur.