Ingibjörg Sædís, hundaeigandi í Reykjavík leggur til að Íslendingar verji peningnum, sem átti að setja í flugeldakaup þetta árið, frekar í bólusetningargjafir til fátækari þjóða. Ingibjörg, sem er þjóðfræðinemi við Háskóla Íslands, segist þó ætla að styrkja björgunarsveitirnar þetta árið en framlagið verði í formi fjárstyrks.
Ingibjörg býr í miðborg Reykjavíkur. Hún á tvo hunda sem, líkt og flestir ferfætlingar, þola hávaða frá skoteldum um áramótin frekar illa.
Hún segist vera á móti flugeldakaupum almennings.
„Ég er á þessari skoðun aðallega út af hundunum mínum. Mér finnst þetta líka óttalegt bruðl og illa farið með hreint loft og peninga,“ segir hún og bætir við að sér finnist flugeldasýningar á áramótum eigi að vera í höndum fagaðila en ekki almennings.
Ingibjörg er í sívaxandi hópi Íslendinga sem kalla eftir að flugeldasölu björgunarsveitanna verði hætt og að farnar verði aðrar leiðir til að fjármagna starfið.
Hún hyggst fjármagna starf sveitanna með fjárframlagi þetta árið, og ætlar að leggja pening beint inn á reikning björgunarsveitarinnar Þorbjörns í Grindavík.
Hvað með að kaupa Covid bólusetningar fyrir fólk í löndum þar sem lítið er búið að bólusetja í staðinn fyrir flugelda?
— ✨ Inga Boogie ✨ (@Inga_toff) December 29, 2021