Sigurður Sigurðsson, fyrrverandi yfirdýralæknir, sem nú er núsettur á Suðurlandi kveðst íhuga að birta lista yfir dýraníðinga í fjórðungnum, en hann hefur undanfarna daga tjáð sig í fjölmiðlum um illa meðferð á dýrum.
Í samtali við fréttamiðilinn Dagskrána á Suðurlandi segist hann hafa safnað lista yfir menn sem hann veit um að fari illa með dýr sín, jafnvel svo árum skiptir - og honum ofbjóði svo þetta framferði að hann geti vel hugsað sér að birta listann:
\"Ég á heima á Selfossi og þekki best nú um stundir til næsta nágrennis míns og fjalla um það hér í fyrstu. Ég hef fylgst með svæðinu árum saman og sé litlar úrbætur því miður. Ég undrast, hversu fáir virðast láta sig varða meðferðina á búfénu sem er á útigangi í sveitarfélaginu Árborg og víðar um land sums staðar í vanhirðu án þess að fá nægilegt fóður og vatn.\"
Hann segir mörg dæmi þess að beit vanti fyrir dýr í útigöngu:
\"Annars staðar eru sýndarskjól úti í haga, ein eða fáar rafmagnsrúllur sem ekki uppfylla kröfur laga og reglna. Hér er einkum verið að tala um hross, en jafnvel eru nautgripir hafðir úti heilu veturna. Þeir eru ennþá verr búnir frá náttúrunnar hendi til að standa af sér illviðri og umhleypingasama tíð en hrossin. Holdanautgripir þola hrakviðri betur en þeir þola ekki, hvað sem er. Skepnurnar leggja af og innyflaormar magnast í vanþrifaskepnum og gera líðanina enn verri. Ormahreinsa þarf vanþrifaskepnur.\"