Vill bætta launatölfræði

Nefnd um bætur á úrvinnslu og nýtingu tölfræðiupplýsinga hefur skilað ítarlegri skýrslu um umbætur á þessu sviði. Forsætisráðherra skipaði nefndina fyrir rúmu ári síðan í kjölfar fundar stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um launatölfræði. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu

„Skýrslan og þær umbætur sem þar eru lagðar til er að mínu mati mikilvægt framlag til þeirrar víðtæku vinnu sem nú á sér stað á vettvangi stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins. Bætt launatölfræði er meðal atriða sem ég hef lagt ríka áherslu á að verði bætt til frambúðar og ég fagna sérstaklega tillögu nefndarinnar um stofnun Kjaratölfræðinefndar, sem er vettvangur aðila í aðdraganda kjarasamninga líkt og tíðkast m.a. í Noregi,” segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.

Helstu niðurstöður og tillögur nefndarinnar eru:

  • Tekinn verði upp sambærilegur vettvangur samráðs milli aðila í aðdraganda kjarasamninga og tíðkast í Noregi. Nefndin hefur unnið drög að samkomulagi um stofnun Kjaratölfræðinefndar og eru þau í viðauka skýrslunnar.
  • Komið verði á heildarsöfnun launaupplýsinga beint frá launagreiðendum. Nefndin leggur þó áherslu á að einnig er mikilvægt að efla núverandi launarannsókn samhliða heildargagnasöfnun til að áhætta við breytta gagnasöfnun sé viðunandi og unnt verði að brúa bilið milli ólíkra gagna og tímaraða.
  • Tilmælum beint til Hagstofu Íslands að skoðað verði hvernig launavísitalan endurspegli hækkandi starfsaldur og aukna menntun. Niðurstöður greiningarinnar verði birtar opinberlega og brugðist við ef þær leiða í ljós bjögun á launavísitölunni.
  • Hagstofan ljúki við að uppfæra íslenska starfaflokkunarkerfið, ÍSTARF95.
  • Lögð er áhersla á mikilvægi þess að hafa áreiðanlegar upplýsingar um vinnutíma, sérstaklega unnar stundir.

Nefndin var skipuð fulltrúum frá forsætisráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, velferðarráðuneyti, heildarsamtökum á vinnumarkaði, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Ríkissáttasemjara og Hagstofu Íslands.

Litið til Noregs

Í Noregi starfar nefnd um tölfræðilegar undirstöður kjarasamninga (TBU), þar sem fulltrúar heildarsamtaka á vinnumarkaði, stjórnvalda og hagstofunnar starfa saman og birta töluleg gögn til undirbúnings kjarasamningum og tryggja með því samræmdan skilning á þeim hagtölum sem liggja til grundvallar.

Í fréttatilkynningunni segir að sambærileg samráðsnefnd á Íslandi myndi skapa vettvang fyrir samræður um forsendur í aðdraganda kjarasamninga, jafnt launatölfræði sem aðrar hagtölur, og auka traust milli aðila. Markmiðið væri að tryggja sameiginlega sýn aðila á stöðu og þróun launa og efnahagsmála og ýta undir það að tekist sé á um efnisatriði frekar en tölfræðilegar aðferðir eða niðurstöður.