Vill aukinn einkarekstur í fríhöfninni

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra telur skynsamlegt að auka þátttöku einkafyrirtækja í rekstri fríhafnarverslana en telur jafnframt mjög mikilvægt að í þeim efnum verði vandlega gætt að því að raska ekki samkeppnisstöðu gagnvart þeim sem stundi rekstur utan flugvallarsvæðisins.
 
Þetta kemur fram í svari ráðherra við fyrirspurn Vilhjálms Árnasonar um eignarhald á flugstöð Leifs Eiríkssonar og fríhafnarverslun - og greint er frá á ruv.is í morgun.
 

Þar segir að fram komi í svarinu að ríkissjóður sem slíkur reki ekki fríhafnarverslun í flugstöðinni og í núverandi lagaumhverfi sé sérstaklega mælt fyrir um skyldu Isavia til að hafa með höndum rekstur fríhafnarverslana. Engar ákvarðanir hafi verið teknar á þessu stigi að breyta því en í ljósi hinnar gríðarmiklu uppbyggingar sem fyrirhuguð sé á flugvellinum og þeirra breytinga sem óhjákvæmilega muni verða á öllu rekstrarumhverfi hans á næstu árum sé ekki ólíklegt að þessi þáttur rekstrar Isavia sæti frekari skoðun í nánustu framtíð.