Kristinn Dagur Gissurarson stjórnarmaður RÚV fordæmir þátt Gísla Marteins Baldurssonar sem sýndur var í beinni útsendingu síðasta laugardagskvöld.
Þetta kom fram í viðtali stjórnarmannsins við Útvarp Sögu í gær. Hann er einnig bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi.
Á vef Útvarps Sögu þar sem vitnað er til viðtalsins í gær segir að eins og frægt sé orðið hafi í þætti Gísla Marteins, Vikunni, komið fram rapphljómsveitin Reykjavíkurdætur \"þar sem þær hneyksluðu marga með framkomu sinni, en sem dæmi nudduðu þær sér utan í aðra gesti þáttarins með áfasta gervilimi\".
Kristinn segir þáttinn í raun hafa verið \"klámsýningu. \"Ég verð bara að segja það hreint út hér að það er með eindæmum að svona efni skuli hafa verið sýnt á ríkisfjölmiðlinum í fjölskylduþætti og ég mun kalla eftir viðbrögðum útvarpsstjóra á stjórnarfundi sem verður nú reyndar á morgun, það eru svona mál sem eiga ekkert að koma fyrir á ríkisfjölmiðli, þar á þetta að vera hófstillt, þar á þetta að vera skynsamlegt, þar á að greina mál frá báðum hliðum\", segir Kristinn.
Í Stundinni segir að í viðtalinu hafi Kristinn verið spurður hvort stjórn RÚV geti dregið Gísla Martein til ábyrgðar. Kristinn segir svo ekki vera, en stjórnin geti „rekið útvarpsstjórann“.
Hringbraut hefur leitað viðbragða Gísla Marteins en ekki fengið svör.