\"Það er alveg á hreinu hvað hann var að gera. Þetta er umfangsmesta húsleit sem framkvæmd hefur verið á Íslandi. Það var ráðist í svokallaða \"microleit\" á skrifstofunni minni,\" segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, aðspurður hvort Már Guðmundsson Seðlabankastjóri hafi ætlað að koma honum í fangelsi.
Rætt er við Þorstein í DV í dag og þar kemur gremja hans í garð æðstu manna Seðlabankans berlega í ljós, en sem kunnugt er tók það hálft fjórða ár að fá úr því skorið hvort Samherji hefði farið á svig við gjaldeyrislög. Nú hefur verið fallið frá málinu, en eftir situr Þorsteinn Már og fjöldi samstarfsmanna hans sem voru vændir um óheiðarleika sem Þorsteini finnst skítt, nær hefði verið að ásaka hann einn í málinu, sem þó hefði engin innistæða verið fyrir, fremur en að draga stálheiðarlegt fólk úr fyrirtækinu til ábyrgðar fyrir engar sakir.
Hann vill ekki orða það svo að hann hafi verið niðurlægður í þessu máli þegar tugir opinberra starfsmanna leituðu klukkutímum saman á skrifstofu hans, en víst hafi aðgerðin öll verið niðurlægjandi. Hann segir við DV: \"Það er búin að fara í þetta ótrúleg orka. Ég verð að viðurkenna það,\" segir hann og bætir við síðar í viðtalinu: \"Já, ég er búinn að vera friðlaus. Og það er ekki bara það. Þetta hefur áhrif á allt líf manns.\"
Hann vill draga menn til ábyrgðar: \"Már Guðmundsson á að bera ábyrgð. Yfirlögfræðingur Seðlabanka Íslands á að bera ábyrgð og framkvæmdastjóri gjaldeyriseftirlitsins á að bera ábyrgð.\"
Og hann tekur af skarið: \"Að sjálfsögðu á Már Guðmundsson að segja af sér,\" enda beri hann sýnu mestu ábyrgðina að mati Þorsteins: \"Hann er búinn að reka mál gagnvart hundruðum einstaklinga og fjölda fyrirtækja, að ástæðulausu. Þetta fólk hefur þurft að borga lögfræðikostnaðinn sinn sjálft,\" segir Þorsteinn í DV í dag.