Vill afnema tolla á matvæli

Viðskiptaráð Íslands telur að afnám tolla á matvörur myndi skila sér í enn meiri skattalækkunum. 

Í tilkynningu frá ráðinu segir að áform Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra um að afnema alla tolla aðra en matartolla fyrir árið 2017 séu fagnaðarefni. Skatttekjur ríkissjóðs hafi hækkað um tæplega 60 milljarða á síðasta ári og því skuli fagna því að sjórnvöld skili hluta þess til baka í formi skattalækkanna. Aðgerðirnar leiði til aukinnar samkeppni, lægra vöruverðs og aukins kaupmáttar, og gætu slíkar breytingar skilað meðalheimilum um 30 þúsund krónur á ári samkvæmt áætlun ráðsins. Að sama skapi njóti neytendur lægri verða og fjölbreyttara vöruúrvals. 

Viðskiptaráð bendir þó á að afnám tolla á matvæli geti skilað enn meiri skattalækkunum. Ráðið hvetur því stjórnvöld sömuleiðis til að afnema tolla á matvörur, en þannig megi umbreyta styrkjafyrirkomulagi landbúnaðarins, líkt og segir í tilkynningunni. Þar segir enn fremur: „Samkvæmt áætlun ráðsins myndi afnám tolla á matvæli skila meðalheimili um 76 þúsund kr. sparnaði til viðbótar við þær 30 þúsund kr. sem sparast við afnám tolla á aðrar vörur. Jákvæð áhrif slíkrar skattalækkunar á lífskjör væru því veruleg.“