Vill afnema mismunun lífeyrisréttinda

"Það er ljóst að breytt lífeyrissjóðakerfi og þær breytingar sem ræddar hafa verið munu kalla á endurskoðun á öllu starfsumhverfi opinberra starfsmanna. Við slíkar breytingar yrði starfsöryggi opinberra starfsmanna á sama grunni og starfsöryggi annarra á almennum vinnumarkaði," skrifar Ragnheiður Ríkharðsdóttir formaður þingflokks Sjálfstlæðismanna í nýjum pistli á hringbraut.is um starfsumhverfi opinberra starfsmanna og fólks á almennum markaði.


Hún vill opinskáa og heiðarlega umræðu um sameiningu á þessum tveimur kerfum, hins opinbera og þess almenna - og vill ræða af yfirvegun "gildandi lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna vegna þess að ef lífeyrissjóðaumhverfið breytist þá hljóta ráðningasamningar flestra opinberra starfsmanna að falla brott í þeirri mynd sem þeir eru í dag og slíkt kallar á gagngerða endurskoðun á lögum um opinbera starfsmenn, réttindi þeirra og skyldur. Þetta verður ekki auðvelt verk, það er flestum ljóst og kannski stærsti þröskuldurinn í umræðunni."


Ragnheiður telur aðskilnað opinberra og almennra launamanna tímaskekkju, í ljósi lífeyrisréttinda og svo margs annars: "Við vitum að umræður hafa átt sér stað og það segir okkur að forystumenn stéttarfélaganna eru reiðubúnir að ræða þessi mál. En ákvarðanatöku þar að lútandi hefur alltaf verið frestað. Ef ástæðan er sú við erum ekki tilbúin að gera þessar breytingar þá er heiðarlegast að menn segi það opinberlega, segi nei, við ætlum að halda þessu tvöfalda lífeyriskerfi og halda við þeirri mismunun lífeyrisréttinda sem er við lýði"