Vill að þjóð sín hafni afarkostum

Gríska þingið samþykkti seint í gærkvöld að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu 5. júlí um samningstilboð lánadrottna ríkisins. Tillagan var samþykkt með atkvæðum 179 þingmanna af 300.
 

Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands hafði á orði fyrir atkvæðagreiðsluna að hann vonaðist eftir því að þjóð sín myndi afdráttarlaust hafna tilboði lánardrottnanna en kyssi engu að síður með evrópskri samstöðu. Hann sagðist vonast eftir því að samningsstaða ríkisins yrði sterkari ef þjóðin kysi í þessa veru. Kjörseðillinn verður einfaldur, annað hvort merkja kjósendur við \"já“ eða \"nei“ gagnvart tillögum lánadrottna sem lagðar voru fram á föstudag.

Tillagan var samþykkt með atkvæðum þingmanna Syriza, flokks forsætisráðherrans, ásamt samstarfsflokki þeirra, Sjálfstæðra Grikkja. Þingmenn nýnasistaflokksins Gullinnar dögunar greiddu einnig atkvæði með tillögunni, en þingmenn Nýs lýðræðis, PASOK, kommúnistaflokksins og miðjuflokksins To Potami greiddu atkvæði gegn tillögunni.

Ákvörðun stjórnarinnar að senda samninginn í þjóðaratkvæði hefur sett stöðu ríkisins gagnvart lánadrottnum í mikið uppnám. Fjármálaráðherrar evruríkja neituðu Grikkjum um að fá frest fram yfir þjóðaratkvæðagreiðsluna til þess að greiða af láni sem gera þarf upp á þriðjudag.