"Eitt oggulítið púsl inn í þann gríðarlega vanda sem blasir við í Karphúsinu gæti verið að stjórnendur og hæst launaða fólkið á vinnumarkaði myndi afsala sér launahækkunum á komandi misserum," skrifar Margrét Kristmannsdóttir fyrrverandi varaformaður í Samtökum atvinnulífsins og fyrrverandi formaður Samtaka verslunar og þjónustu í nýjum pistli á hringbraut.is
Í pistlinum leggur hún til að fólkið með breiðasta bakið í samfélaginu gangi einfaldlega fram fyrir skjöldu og leggi sitt af mörkum til að tryggja hér stöðugleika – eins og frekast er kostur í þeirri stöðu sem upp er komin. Margrét skrifar: "Ekki eingöngu myndi tekjuhæsta fólkið taka á sig kaupmáttarskerðingu með þessari aðgerð heldur það sem er miklu, miklu, miklu mikilvægara: að þetta skref gæti hugsanlega leitt til þess að í lok þessarar kjarabaráttu myndi meiri sátt ríkja í samfélaginu. Það væri ekki til lítils að vinna ef það tækist."
Hún segir enn fremur: "Þessi kjaradeila snýst enda um svo miklu meira en bara krónur og aura. Hún snýst ekki síður um þá upplifun að íslenskt samfélagið sé að snúast í átt til aukins ójafnaðar – að hér sé hlutum einfaldlega ekki réttlátlega skipt."