Óðinn, fastur pistlahöfundur Viðskiptablaðsins, vill að Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segi upp störfum. Ekki er vitað hver skrifar Óðinn en Trausti Hafliðason, ritstjóri Viðskiptablaðsins, er ábyrgðarmaður hans og hefur svarað fyrir efnistökin.
Óðinn vitnar í viðtal Morgunblaðsins við Björn Zöega, forstjóra Karólínska sjúkrahússins í Svíþjóð og fyrrverandi forstjóra Landspítalans, sem sagði að þegar Covid-19 fór að breiðast út í Svíþjóð hefði afkastageta gjörgæslu sjúkrahússins verið fimmfölduð, úr 30-40 rúmum í tæp 200. „Hann sagði að mikill rekstrarvandi hefði verið á sjúkrahúsinu þegar hann tók við árið 2019. Eftir sex vikur í starfi sagði hann upp um 500 skrifstofumönnum og ekki löngu síðar 400 læknum og sjúkraliðum. Það er tæplega 6% fækkun í starfsliðinu en í dag starfa um 15 þúsund manns á sjúkrahúsinu,“ segir Óðinn og vitnar svo beint í Björn:
„Við vorum í u.þ.b. 88% af kröfunni um það sem við áttum að framleiða, einhverjir kalla það pöntunina til okkar. Í fyrra enduðum við í 105,5% og með nærri 1.000 færri starfsmenn. Það segir ýmislegt,“ sagði Björn.
Óðinn heldur áfram:
„Samkvæmt þessu hefur framleiðni á Karólínska sjúkrahúsinu aukist í kringum fjórðung frá því að Björn Zoëga tók við starfi forstjóra. Þó verður að hafa í huga að starfsfólk er misdýrt og því er framleiðnin (27%) ekki nákvæm tala. Þess má geta að Björn var forstjóri Landspítalans á árunum 2008-2013. Framlögin aukist mikið Framlög ríkisins til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins jukust um 24% á árabilinu 2017-2020. Aukning til Landspítala nam um 12% á sama tímabili, 8% til Sjúkrahússins á Akureyri og 10% að meðaltali til heilbrigðisstofnananna sex sem starfa um allt land.“
Óðinn segir að ef sami rekstrarárangur næðist á Landspítalanum og Karólínska sjúkrahúsinu væri sparnaðurinn 10-15 milljarðar króna. „Enginn veit hvort það er gerlegt, en allir sæmilega læsir á rekstur sjá að sparnaðurinn gæti verið gríðarlegur. En stjórnendur Landspítalans virðast hvorki hafa vilja né getu til að bæta reksturinn heldur vilja að skrúfað sé enn meira frá peningakrana skattgreiðenda til spítalans.“
Er svo vitnað í minnisblað sem Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, og Már Kristjánsson, formaður farsóttanefndar spítalans, sendu til heilbrigðisráðherra á mánudag kemur fram að einu lausnir stjórnendanna séu að losa spítalann við vandann. Þegar minnisblaðið var sent inn hafi 27 legið inni á Landspítalanum með Covid-19, þar af sex á gjörgæslu.
„Það er ljóst að stjórnendur Landspítalans eru ekki vandanum vaxnir. Allir sjá að Covid-19 hefur haft mikil áhrif á rekstur spítalans. En það er verkefni stjórnenda að bregðast við vandanum en ekki að koma stöðugt fram í fjölmiðlum og senda stjórnvöldum minnisblöð og væla yfir stöðunni. Það er ekkert gagn að slíkum mönnum og allra síst þegar reynir á,“ segir Óðinn.
„Óðinn hvetur því forstjóra Landspítalans til að láta hér staðar numið og skrifa sitt síðasta bréf í starfi forstjóra – uppsagnarbréfið.“