Mjög skiptar skoðanir eru meðal landsmanna um þá ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar að gefa enn eina ferðina kost á sér til embættis, enda þarf margt að breytast til að önnur forsetaefni eigi séns. Telja margir að 24 ár á forsetastóli sé hvorki nokkrum manni hollt né samfélagi. Sama umræða var uppi fyrir fjórum árum um sextán ára valdatíð Ólafs.
Ein þeirra sem hefur blandað sér í opinbera um ræðu um Ólaf Ragnar er Heiða Heiðars, auglýsingastjóri Stundarinnar. Heiða telur að með sama hætti og Andri Snær Magnason hafi nú afsalað sér listamannalaunum á meðan hann vinnur að framboði sínu og hafi því engan tíma til að skrifa, ætti Ólafur Ragnar að fara að fordæmi Andra Snæs.
\"Andri Snær Magnason hefur afþakkað listamannalaun vegna framboðs til forseta. Hann sá ekki sanngirni í því að vera á launum hjá þjóðinni í kosningabaráttu. Sitjandi forseti hlýtur að gera það sama. Varla þykir honum eðlilegt að þiggja 2 milljónir á mánuði á meðan hann er í kosningabaráttu,\" skrifar Heiða á facebook.
Á blaðamannfundi í vikunni kom fram hjá Ólafi að hann hefði fyrir fjórum árum kostað eigin kosningabaráttu að verulega leyti úr eigin vasa. Þá fór hann í ferðir um landið og hélt fundi auk þess að gagnrýna harðlega forsetaframboð Þóru Arnórsdóttur og ekki síður störf eiginmanns hennar.
Ekki er vitað hvort Ólafur starfaði launalaust að kosningabaráttu sinni þá.