Vill að konur ráði alþingi í tvö ár

Ragnheiður Ríkharðsdóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins lagði það til á Alþingi í gærdag að einungis konur yrðu í framboði til Alþingis í næstu Alþingiskosningum og fengju tvö ár til að breyta vinnubrögðum löggjafarsamkundunnar.


Ragnheiður er langþreytt á vinnubrögðum þingsins, en hún segist litlar sem engar breytingar hafa séð á vinnulagi þingmanna þau átta ár sem hún hefur setið á þingi. Horfa yrði til róttækra aðgerða til að snúa þinginu af villu síns vegar og nefndi hún því þessa hugmynd sína um tveggja ára kvennaþing sem gæti hæglega hreinsað andrúmsloftið innan þingsalarins. Með því móti væri hægt að sannreyna hvort vinnubrögð kvenna væru önnur eða betri en vinnubrögð karla.


Hún segir að eftir tveggja ára kvennaþing fengi þjóðin svo að kjósa um það hvort hleypa ætti körlum aftur í þingsalinn eða ekki.