Vill að kjörnir fulltrúar rífi sjálfir niður vegg

Stefán Guðmundsson, framkvæmdastjóri hvalaskoðunarfyrirtækisins Gentle Giants, hefur kært ákvörðun byggingarfulltrúa Norðurþings um að nýhlaðinn veggur á lóð fyrirtækisins við höfnina í Húsavík verði fjarlægður. Hann telur að pólítík ráði för og vill að þeir kjörnu fulltrúar sveitarfélagsins sem stutt hafi ákvörðun byggingarfulltrúans rífi vegginn sjálfir niður, komi til þess að hann verði fjarlægður.

Málið má rekja til þess að Gentle Giants keypti hið svokallaða Flókahús, þar sem fyrirtækið hefur verið með starfsemi um árabil. Ráðist hefur verið í töluverðar framkvæmdir á húsinu sem ánægja virðist ríkja með ef marka má umfjöllun málsins í ráðum og nefndum sveitarfélagsins.

Nánar á

http://www.visir.is/g/2018181009573