Vill að hommar fái að gefa blóð

Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra vill breyta gildandi regluverki svo að samkynhneigðum karlmönnum verði heimilt að gefa blóð. Þetta kemur fram í svari ráðherrans við fyrirspurn Brynhildar Pétursdóttur, þingflokksformanns Bjartrar framtíðar.
 

Þar kemur fram að ráðherra hafi fengið fundargerð frá ráðgjafanefnd um fagleg málefni í blóðgjafaþjónustu. Sumir þeirra sem skipuðu nefndina hafi óskað eftir lausnum frá nefndarstörfum og upplýsir Kristján Þór að unnið sé að því að skipa nýja nefndarmenn í stað þeirra.

Nefndin nefni nokkur lykilatriði sem hún telji vert að skoða og vinni að. Meðal annars að öryggi blóðþega sé alltaf haft í fyrirrúmi.

Í svari ráðherrans kemur fram að nefndin telji jafnframt að ekki eigi að gera breytingar á lögum og reglum um blóðgjöf nema að vel ígrunduðu máli og á grundvelli vandaðra gagna sem nauðsynlegt sé að afla, vinna úr og meta með tilliti til áhrifa á öryggi blóðþega og á starfsemi Blóðbankans. 

Brynhildur spurði heilbrigðisráðherra enn fremur að því hver afstaða hans væri til þess að veita samkynhneigðum körlum heimild til að gefa blóð: \"Afstaða ráðherra er að leitað verði leiða til að breyta gildandi regluverki svo að samkynhneigðum karlmönnum verði heimilt að gefa blóð,“ segir í svari Kristjáns.