Vill að höfundar Verbúðarinnar fjalli næst um krónuna

Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, vill að Vesturport, framleiðandi þáttanna um Verbúðina, taki að sér að búa til sjónvarpsþætti um krónuna.

Eins og kunnt er orðið er Verbúðin ádeila sem meðal annars fjallar um tilurð íslenska kvótakerfisins, sem er æði umdeilt í þjóðfélagsumræðunni. Því kann Hönnu Katrínu að þykja rökrétt að sams konar ádeila verði gerð um annað málefni sem er henni og flokksmönnum hennar kappsmál, það er íslensku krónuna. Hanna Katrín hefur verið dugleg að gagnrýna krónuna og hefur mælt með því að gengi hennar verði bundið við evru til þess að koma í veg fyrir verðsveiflur.

Erni Úlfari Sævarssyni þykir liggja nær lagi að gera þætti um verslanakeðjuna Bónus, sem eigi sér mun betri sögu en Krónan. Því jánkar Hanna Katrín, en segir sögu Bónusar þó ekki ná að toppa krónuna.