Vill að heiðarlegt fólk taki við

Stuðningsmenn Viðreisnar undir forystu Benedikts Jóhannessonar lýsa yfir miklum vonbrigðum með aðgerðir ríkisstjórnarinnar varðandi umsókn Íslands um fulla aðild að Evrópusambandinu. Eftir fund þeirra í dag sendu þeir fjölmiðlum tilkynningu þess efnis að sífellt væri verið að leita leiða til þess "að spilla fyrir möguleikum til þess að ná niðurstöðu í viðræðum við sambandið í stað þess að standa við við gefin loforð um að vísa málinu til þjóðarinnar." 

Á fundinum var skorað á Alþingi að ákveða þjóðaratkvæðagreiðslu um málið svo fljótt sem verða má, en í harðorðri ályktun hans segir jafnframt: "Næstu Alþingiskosningar munu snúast um það hvort þjóðin vill stjórnmálamenn sem standa við gefin loforð eða hina sem telja sig ekki bundna af þeim nema fram að kjördegi. Þess vegna er nauðsynlegt að nýtt, heiðarlegt, frjálslynt og markaðssinnað afl leiði ríkisstjórn eftir næstu kosningar til Alþingis."