Þrjár stúlkur kærðu lögreglumanninn fyrir kynferðisbrot. Ein þeirra var stjúpdóttir hans á þeim tíma. Önnur var Helga Elín Herleifsdóttir. Þær sögðu sögu sína í fjölmiðlum í fyrra. Málin leiddu ekki til ákæru.
Samkvæmt kærunni braut lögreglumaðurinn á Helgu í sumarbústaðarferð sem hún fór í ásamt honum, Kiönu og móður hennar árið 2007, þegar stúlkurnar voru tíu ára. Þá hafi verið horft á klámefni í bústaðnum. Með í bústaðnum hafi verið háttsettur embættismaður og eiginkona hans. Sá vann um tíma hjá embætti ríkislögreglustjóra.
„Þetta eru allt fyrrum vinnufélagar,samstarfsfélagar úr ráðuneytinu, það er alveg sama hvar að borðinu maður kemur, þetta eru allt félagar,“
segir Halldóra Baldursdóttir, móðir Helgu Elínar.
Lögreglumanninum var ekki vikið frá störfum á meðan málin voru til rannsóknar. Hann starfar enn sem lögreglumaður.
Ítarlega er fjallað um málið á vef RÚV.